Trending project
Þjóðleikhúsið projects with the most verified people and teams
Inside the Þjóðleikhúsið network
The people, teams, and projects that make up the Þjóðleikhúsið network
Featured project
Verkið sprettur úr hugarheimi unga fólksins sem myndar Listahópinn Trúnó og er samsuða hugmynda í formi klukkustundar langrar sýningar. Verkið vekur upp spurningar um hver við erum á yfirborðinu, hvað þarf til að sleppa takinu og leyfa því sem kraumar undir að brjótast út. Frá hópnum: - Verkið fjallar um hversu krefjandi, erfitt og fallegt það getur verið að berjast fyrir sínu plássi á þessari stóru plánetu og í litla, ferkantaða samfélaginu sem við búum í. - Hver erum við í kjarnanum, hverju má sleppa? Hvað vil ég úr lífinu? - Heimsending fjallar um að fletta af sér lögunum og hjúpnum sem samfélagið hefur sveipað um okkur. Sex ungir einstaklingar fá rými og tækifæri til þess að fletta ofan af sér sjálfum, breiða úr sér og sleppa takinu. Um verkefnið: Trúnó er listahópur ungs fólks á aldrinum 18-20 ára sem vinna með sín eigin hugðarefni á sínum eigin forsendum. Markmið verkefnisins er að gefa ungu fólki rödd og að skapa rými fyrir þeirra hugmyndir innan Þjóðleikhússins. Í ársbyrjun 2021 óskaði Þjóðleikhúsið eftir hugmyndum og textum um umfjöllunarefni ungs fólks og bárust nokkrir tugir texta frá ungmennum fædd á árunum 2000-2005. Í kjölfar þess var auglýst eftir einstaklingum til að halda áfram þróun verkefnisins undir handleiðslu Dominique Gyða Sigrúnardóttur, leikkonu og leikstjóra, og Siggu Dögg kynfræðingi, sem hafa umsjón með verkefninu. Sex einstaklingar voru ráðnir til að kafa dýpra ofan í málefnin og mynda listahópinn Trúnó, þau Benóný Arnórsson, Sara Guðnadóttir, Helga Salvör Jónsdóttir, Egill Andrason, Stefán Nordal, Jóna Gréta Hilmarsdóttir og Kolfinna Ingólfsdóttir. Margvíslegar og óhefðbundnar aðferðir voru notaðar til að kafa dýpra ofan í málefni og tilfinningar á borð við einmanaleika, samskipti, ástina, væntingar og kvíða. Í tilraunaverkefni sem þessu eru aðferðir og æfingar vel skrásettar til að finna út hvers lags form henti málefninu sem best. Lokaorðið á framsetningu verkefnisins var í höndum listahópsins. Þeirra sýn og hugmyndir stýrðu ferðinni. Í samsköpunar ferli verður til gífurlega mikið af efni og er það einn liður verkefnsins að miðla frá ferlinu bæði innan leikhússins og fyrir utan.