Performance
Trending projects
Performance projects with the most verified people and teams
At a glance
Featured project
SKÖMM
Leikritið dregur innblástur sinn frá norsku sjónvarpsþáttunum SKAM sem njóta gríðarlegra vinsælda hér á landi, en er á engan hátt nákvæmlega eins og þættirnir. Dominique Gyða Sigrúnardóttir semur handrit og leikstýrir, Daði Freyr Pétursson sér um tónlistarstjórn og Kjartan Darri Kjartansson um ljósahönnun. Leikritið fjallar um þetta tímabil sem við þekkjum öll svo vel, unglingsárin þegar við mótumst frá barni yfir í fullorðinn einstakling og þau vandamál sem koma upp á þeim árum, ásamt því góða sem gerist. Vinátta og vandræði, stríðni, afskipt ungmenni, uppteknir foreldrar, ást og hrifning, gagnkvæm ást og höfnun, kynlíf og getnaðarvarnir, áfengi, leyndarmál, snjallsímar, tónlist, kvikmyndir og sjónvarpsþættir er bara hluti af því sem boðið er upp á. Í verkinu SKÖMM hafa 10 leikarar búið til sína eigin sýningu frá grunni undir leiðsögn Dominique, með því sem kallað er „devised“ aðferð, eða samsköpunarleikhús, en vinnan við það er mjög krefjandi fyrir þá sem að því koma. Þó verkið beri nafnið SKÖMM er verkið sjálfstætt og persónurnar nýjar og aðrar en þær sem eru í norsku þáttunum, enda nóg af spennandi og hæfileikaríkum unglingum til að sækja innblástur í hér á Íslandi. Hópurinn notar ýmsa miðla til að halda í hráan raunveruleikann sem einkennir einnig norsku þættina SKAM, til dæmis hefur hver persóna í verkinu sína eigin instagram-síðu. Persónurnar munu halda áfram að lifa sjálfstæðu lífi í gegnum instagram meðan á sýningum stendur og aldrei að vita hvað svo tekur við. https://issuu.com/solladesigns/docs/leikskra_issuu_minmin https://www.facebook.com/verzloskomm/videos_byPeople spotlight
The people with the most verified roles on Performance projects