Musical
Trending projects
Musical projects with the most verified people and teams
Featured project
Fútlúsz - Söngleikur Verzló 2017
Söngleikur Verzlunarskólans 2017, Fútlúsz, er byggður á kvikmyndinni Footloose frá 1986 og endurgerðinni frá 2011. Söngleikurinn eru unninn í samstarfi við sviðslistarhópinn. Sagan segir frá stráknum Aroni sem flytur með móður sinni frá borginni til Hafna, litlum bæ úti á landi. Hann kynnist ungri prestsdóttur, Evu og þau verða ástfangin, þrátt fyrir að Eva á kærasta. Aron kynnist þessu samfélagi en kemst fljótt að því að ekki getur það kallast eðlilegt. Frelsi íbúa er skert eftir banaslys sem átti sér stað fyrir nokkrum árum. Dans og skemmtanir eru nú með öllu bannaðar samkvæmt nýjum lögum bæjarins. Bænum er stýrt af íhaldssömu fullorðnu fólki sem veitir börnum sínum ekkert frelsi. Það hefur í för með sér reiði barnanna gagnvart foreldrum, fullorðnum og bæjaryfirvöldum. Aron, sem kemur frá borginni þar sem dans og skemmtanir eru sjálfsagðar, kemur í bæinn með algerlega nýtt hugarfar. Mun Aron ná að verða partur af samfélaginu þrátt fyrir frelsishamlanir þess? Mun Eva velja Aron yfir kærastann sinn? Ætli Aron geti breytt hugarfari bæjarbúa um bann á skemmtun og dansi?People spotlight
The people with the most verified roles on Musical projects